Viðburðir

Niðurstöður LOKS og CES verkefnanna kynntar 

Norræn jarðvísindaráðstefna í Hörpu, janúar 2012

Hátt á þriðja hundrað fræðimenn sóttu þrítugasta vetrarmót norrænna jarðvísindamanna, sem haldið var haldið í Hörpu 9.-12. janúar 2012. Veðurstofa Íslands skipulagði sérstaka setu (session) á ráðstefnunni um áhrif hlýnandi loftslags á veðurfar, vatnafar og afkomu jökla, með sérstakri áherslu á niðurstöður LOKS verkefnisins og norræna systurverkefnisins CES. M.a. var fjallað um nýjustu spár um hita- og úrkomubreytingar hérlendis fram til 2050 og sýndar niðurstöður reikninga um jökla- og afrennslisbreytingar á sama tímabili.

Tólf erindi voru flutt á loftslagssetunni og má skoða ágrip þeirra á vefnum.

Styrkur til verkefnisins ArcticFlow, sem styrkt var af Norrænu ráðherranefndinni, gerði Veðurstofu Íslands kleift að bjóða eftirtöldum vísindamönnum frá Norðurlöndum og Þýskalandi til þátttöku í ofangreindri setu:

Stefan Rahmstorf er prófessor í eðlis- og haffræði við Potsdamháskóla í Þýskalandi og deildarstjóri við stofnun, sem fæst við rannsóknir á áhrifum veðurfarsbreytinga. Hann var einn af aðalhöfundum skýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC, 2007) og á sæti í ráðgjafanefnd ríkisstjórnar Þýskalands um loftslagsmál. Rahmstorf er einn af helstu sérfræðingum heims um sjávarborðsbreytingar og þátt hafstrauma í veðurfarsbreytingum.

Jens Hesselbjerg Christensen er deildarstjóri við dönsku veðurstofuna (DMI), einn fremsti loftslagsvísindamaður Norðurlanda og sérfræðingur í gerð og beitingu veðurlíkana. Hann var m.a. aðalhöfundur kafla um svæðisbundnar loftslagsspár í síðustu loftslagsskýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna og hefur nýlega stjórnað samningu nýs og ýtarlegs yfirlits um ástand Grænlandsjökuls.

Bogi Hansen stjórnar hafrannsóknum við Havstovuna í Þórshöfn og er einnig prófessor við Fróðskaparsetur Færeyja. Rannsóknir hans á Golfstraumnum og mögulegum breytingum hans í hlýnandi loftslagi njóta mikillar viðurkenningar og voru honum veitt náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006.

Steingrímur Jónsson er prófessor í haffræði við Háskólann á Akureyri. Hann stundar m.a. rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á hafstrauma og lífríki hafsins og á haffræði fjarða við landið. Með rannsóknum sínum á undanförnum árum hafa Steingrímur og samstarfsmenn hans m.a. sýnt fram á tilvist áður óþekkts hafstraums yfir landgrunnshlíðinni norðan Íslands.

Erik Kjellström er veðurfarsfræðingur og aðstoðarprófessor við Rossby líkanreikninga-miðstöðina á veður- og vatnafræðistofu Svíþjóðar (SMHI). Hann er m.a. sérfræðingur í gerð sviðsmynda um framtíðarveðurfar og hefur nýlega stýrt reikningum á þróun lofthita og úrkomu á Norðurlöndum fram til 2050. Niðurstöður hans og samstarfsmanna hans um þróun veðurfars á Norðurlöndum á næstu áratugum koma út í þessum mánuði í skýrslu, sem gefin er út af Norrænu ráðherranefndinni og ritstýrt á Veðurstofu Íslands.

Sjá einnig frétt um ráðstefnuna.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica