Fréttir
Þórsmörk
Göngufólk í Þórsmörk 2. júní 2012.

Tíðarfar í júní 2012

Stutt yfirlit

2.7.2012

Júnímánuður var hlýr um landið vestanvert en fremur kaldur austanlands. Mjög þurrt var á landinu, sérstaklega þó norðvestanlands þar sem mánuðurinn var sá þurrasti sem vitað er um. Sérlega sólríkt var um landið sunnan-, vestan- og norðanvert. Hægviðrasamt var í mánuðinum.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist 10,7 stig, 1,7 stigi ofan meðallags og er þetta áttundi hlýjasti júnímánuður sem vitað er um i Reykjavík (tillit er tekið til flutninga stöðvarinnar um bæinn). Júní 2010 var hlýrri heldur en júní nú. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 9,7 stig og er það 1,6 stigum yfir meðallagi. Mun kaldara var um landið austanvert. Á Akureyri var meðalhitinn 8,9 stig, eða 0,3 stigum undir meðallagi, og á Egilsstöðum var hiti 1,3 stigum undir meðallagi. Júní í fyrra (2011) var þó talsvert kaldari norðaustanlands heldur en sá nýliðni. Meðalhita á fleiri stöðvum má sjá í töflu. Þar má einnig sjá hvar mánuðurinn raðast í meðalhitaröð, frá þeim hlýjasta talið.

stöð hiti vik röð af
Reykjavík 10,7 1,7 8 142
Stykkishólmur 9,7 1,6 11 til 12 167
Bolungarvík 8,5 1,5 32 115
Akureyri 8,9 -0,3 81 131
Egilsstaðir 7,4 -1,3 50 57
Dalatangi 5,6 -0,6 60 73
Teigarhorn 6,1 -1,2 121 140
Höfn í Hornaf. 8,0
Kirkjubæjarklaustur 9,8 0,5 40 til 41 86
Stórhöfði 9,3 1,3 14 til 15 135
Árnes 10,7 1,4 15 [131]
Hveravellir  6,9 2,0 6 47


Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Þyrli í Hvalfirði, 11,0 stig og 10,9 stig á Hafnarmelum. Lægstur var meðalhitinn á Gagnheiði, 1,1 stig. Í byggð og á láglendi var meðalhitinn lægstur í Seley, 4,9 stig og 5,2 í Papey.

Hæsti hiti mánaðarins mældist á Hellu á Rangárvöllum og í Árnesi þann 2., 22,8 stig. Hæsti hiti á mannaðri stöð mældist í Stafholtsey þann 1., 21,2 stig. Hiti komst í 20 stig aðeins sjö daga í mánuðinum.

Lægstur mældist hitinn á Gagnheiði þann 5., -5,7 stig. Í byggð mældist hitinn lægstur -4,4 stig á Brú á Jökuldal þann 13. Sama dag mældist lágmarkshiti -2,7 stig á Grímsstöðum á Fjöllum. Var það lægsta lágmark á mannaðri stöð í mánuðinum. Hiti fór niður fyrir frostmark á landinu alla daga nema fimm í mánuðinum og í byggð mældist frost 20 daga mánaðarins.

Engin landsdægurmet hita féllu í mánuðinum.

Úrkoma

Mjög þurrt var á landinu og úrkoma alls staðar minni en í meðalári. Þurrkarnir voru óvenjulegastir um landið vestanvert, allt frá Reykjanesskaga í suðri norður og austur um til Skagafjarðar. Úrkoma hefur aldrei mælst jafnlítil í júní á fjölmörgum stöðvum á þessu svæði, m.a. í Stykkishólmi þar sem mælt hefur verið samfellt í júní frá 1857. Úrkoman í Stykkishólmi mældist nú aðeins 0,6 mm.

Úrkoma mældist 13,8 mm í Reykjavík og er það aðeins 28 prósent meðalúrkomu. Ámóta þurrt var í Reykjavík í júní í fyrra (2011) og sömuleiðis mældist úrkoma litlu minni 2008 og 1980. Þurrasti júni í Reykjavík var 1971 en þá mældist úrkoma aðeins 2,1 mm.

Á Akureyri mældist úrkoman í júní 9,9 mm og er það um 35 prósent meðalúrkomu. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman aðeins 12,6 mm. Þetta er minnsta júníúrkoma þar um slóðir frá 1991.

Sólskinsstundir

Óvenjusólríkt var bæði í Reykjavík og á Akureyri. Í Reykjavík mældust sólskinsstundirnar 320,6 og hafa aðeins einu sinni orðið fleiri í júní. Það var 1928 þegar þær mældust 338,3. Sól skein nú 159 stundir umfram meðallag í júní. Samanlagt eru sólskinsstundir í maí og júní í Reykjavík nú 617 stundir og hafa aldrei mælst svo margar í þessum tveimur mánuðum samanlagt.

Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 258,4 og er það 82 stundum umfram meðallag. Sólskinsstundirnar voru ámóta margar á Akureyri í júní 2010.  

Loftþrýstingur og vindhraði

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1017,2 hPa og er það 7,1 hPa yfir meðallagi. Þrýstingur var ívið hærri en nú í júní 2009 og svipaður og nú 2007. Síðan þarf að fara aftur til 1982 og 1971 til að finna ámóta háan þrýsting eða hærri.  

Loftvog var hæst á Höfn í Hornafirði þann 1., 1029,0 hPa en lægst á Stórhöfða í Vestmannaeyjum þann 6. 1006,3 hPa.  

Hægviðrasamt var í mánuðinum. Meðalvindhraði var um 0,7 m/s undir meðallagi. Meðalvindhraði var lítillega lægri í júní 2009 heldur en nú.  

Fyrstu sex mánuðir ársins

Hlýtt hefur verið á landinu það sem af er ári. Í Reykjavík hefur aðeins átta sinnum verið hlýrra fyrstu sex mánuðina frá því að mælingar hófust og í Stykkishólmi hefur aðeins fjórum sinnum verið hlýrra. Sex sinnum hefur verið hlýrra á Akureyri.  

Þrátt fyrir þurrkana undanfarnar vikur er úrkoma enn yfir meðallagi á landinu miðað við fyrstu sex mánuði ársins því óvenjuúrkomusamt var fyrstu mánuðina.  

Sólskinsstundir hafa verið óvenjumargar í Reykjavík og hafa aðeins einu sinni verið fleiri fyrstu sex mánuði ársins. Það var 1924.

Bólstraský. Myndin er tekin 23. júní 2012 á Uxahryggjaleið. Þórisjökull í forgrunni.
Ljósmynd: Guðrún Nína Petersen.

Bólstraský



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica