Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í skamma stund í Grindavík í nótt (allt upp í 9000 míkrógrömm/m3) en þau lækkuðu fljótt aftur niður í eðlileg gildi. Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í Bláa lóninu og í Höfnum í gær.
Lesa meira
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraÍ dag er haldið upp á alþjóðlegan dag veðurs undir yfirskriftinni „í framvarðarsveit loftlagsaðgerða“ (e. At the frontline of climate action) Í ár er lögð áhersla á að loftslagsbreytingar eru sannarlega að eiga sér stað og ógna gjörvöllu samfélagi manna. Áhrifin eru þegar sýnileg og munu verða enn verri ef ekki er brugðist við þegar í stað.
Lesa meiraPáll fæddist í Fljótstungu í Hvítársíðu 13. ágúst 1923. Hann stundaði nám í Héraðsskólanum í Reykholti frá 1939 til 1941 og lauk síðan stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1944. Að loknu tveggja ára námi í verkfræði við Háskóla Íslands hélt hann til Svíþjóðar 1947 og stundaði nám í veðurfræði við Sveriges Meteorologiska och Hydrologiska Institut (SMHI) í Stokkhólmi og lauk þar prófi 1949. Hann stundaði frekara nám og rannsóknir í veðurfræði við Stokkhólmsháskóla frá 1953 og lauk fil.kand.-prófi 1955. Á árinu 1958 dvaldist hann í Osló í nokkra mánuði við rannsóknir til undirbúnings tveggja daga veðurspáa. Þá vann hann við rannsóknir á spáaðferðum við Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa (ECMWF) í Reading í Bretlandi hálft árið 1980.
Heim kominn frá veðurfræðinámi 1949 hóf Páll störf sem veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands en hann hafði áður starfað þar sem aðstoðarmaður frá 1946 til 1947 og sumarið 1948. Meginverkefni hans á stofnuninni allt til 1982 sneru að almennri veðurspáþjónustu og flugveðurþjónustu. Hann var deildarstjóri veðurfræðirannsókna frá 1982 til 1989. Árið 1989 var Páll skipaður veðurstofustjóri frá 1. október og gegndi því embætti til ársloka 1993, þá sjötugur að aldri.
Lesa meira