Fréttir
Ásbyrgi í Öxarfirði
Séð frá sjálfvirku stöðinni í Ásbyrgi í Öxarfirði í júní 2005.

Hitamet í apríl

3.5.2007

Síðustu daga aprílmánaðar var óvenjuhlýtt á landinu og hitamet féllu víða. Landshitamet aprílmánaðar féll þ. 29. (sunnudag) þegar hiti komst í 23,0°C á sjálfvirku stöðinni í Ásbyrgi í Öxarfirði og í 21,9°C á mönnuðu stöðinni á Staðarhóli í Aðaldal. Hvoru tveggja er met í sínum flokki.

Áður hafði hiti á sjálfvirkri stöð orðið hæstur á Hallormsstað 21,4°C þ. 19. apríl 2003, en á mannaðri stöð 21,1°C á Sauðanesi við Þistilfjörð 18. apríl 2003.

Auk landsmetanna féllu mjög mörg met á einstökum stöðvum. Aprílhitamet féllu á 18 af 32 skeytastöðvum (56%). Mislengi hefur verið athugað á stöðvunum, en sérlega athyglisverð eru hitametin í Stykkishólmi, á Akureyri og á Grímsstöðum á Fjöllum, en á þessum stöðvum hefur verið athugað í meir en 100 ár.

Skeyti berast nú frá 144 sjálfvirkum veðurstöðvum og féllu aprílhitamet á 96 þeirra í mánuðinum eða 67%. Athuga ber þó að flestar stöðvarnar hafa aðeins athugað i fáein ár. Aprílhitamet féllu á 44 af 57 stöðvum Vegagerðarinnar (77%).

Miðað við árstíma voru einnig óvenjuleg hlýindi í háloftunum yfir landinu, m.a. komst hiti í 1500 metra hæð yfir Keflavík í 8°C sem er um 12 stigum hlýrra en að meðaltali á þessum árstíma. Í 5,5 km hæð komst hitinn í -20°C og er það 6 til 7 stigum hlýrra en að meðaltali um mánaðamótin apríl og maí. trj

Listi um ný met á skeytastöðvum:

Ný aprílhitamet °C Eldra met
Stafholtsey 17,2 2005
Stykkishólmur 16,4 2005
Ásgarður 19,2 2005
Hólar í Dýrafirði 17,2 2005
Bolungarvík 16,3 2005
Litla-Ávík 14,6 2003
Reykir í Hrútafirði 17,6 2005
Bergstaðir 19,6 2003
Akureyri 21,5 1976
Torfur 20,8 2003
Mýri í Bárðardal 17,3 2003
Staðarhóll 21,9 2003
Grímsstaðir á Fjöllum 19,8 2003
Dalatangi 19,1 1972
Höfn í Hornafirði* 17,0 1981
Hæll í Gnúpverjahreppi 15,5 2003
Hjarðarland í Biskupstungum 15,6 2003


*Ekki mælt 1986-2006

Eins og sjá má eru eldri met oftast nýleg, ýmist úr hitabylgjum í apríl árin 2003 og 2005.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica