Fréttir
Herðubreið hinn 21. janúar 2015 kl. 12:00.

Tíðarfar í janúar 2015

Stutt yfirlit

2.2.2015

Mánuðurinn var kaldur miðað við það sem algengast hefur verið í janúar á seinni árum og var hitinn undir meðallagi síðustu tíu ára alls staðar á landinu en víðast hvar yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 nema sums staðar sunnanlands. Úrkomusamt var um nær allt land en þó ekki nærri metum. Nokkuð var umhleypingasamt en þó ekki mörg stórviðri.

Landsmeðalhiti í byggð var undir frostmarki 18 daga mánaðarins.

Hiti

Mánaðarmeðalhitinn í Reykjavík mældist -0,3 stig, 0,2 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -1,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti janúar í Reykjavík frá 2007 að telja. Á Akureyri var mánaðarmeðalhitinn -1,2 stig, 0,9 stigum yfir meðallagi 1961 til 1990, en -1,4 undir meðallagi síðustu tíu ára.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalh. vik 1961 til 1990 röð af vik 2005 til 2014
Reykjavík -0,3 0,2 72 til 73 145 -1,5
Stykkishólmur -0,2 1,1 58 til 60 170 -1,0
Bolungarvík -0,6 0,6 57 til 58 118 -1,1
Grímsey 0,5 1,7 32 142 -0,5
Akureyri -1,2 0,9 58 134 -1,4
Egilsstaðir -1,9 0,6 31 61 -1,7
Dalatangi 1,5 1,2 31 77 -0,7
Teigarhorn 0,3 0,5 64 143 -1,2
Höfn í Hornafirði 0,5 1,0 -1,1
Stórhöfði 0,9 -0,4 84 139 -1,9
Hveravellir  vantar enn
Árnes -2,5 -0,4 80 136 -2,1

Að tiltölu var kaldast á stöðvum á Suðurlandi og sums staðar á hálendinu en hlýjast við norðurströndina. Vik frá meðallagi síðustu tíu ára var neikvæðast á Laufbala, -3,2 stig, en minnst í Grímsey, -0,5 stig.

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 2,3 stig, en lægstur á Brúarjökli, -7,6 stig. Lægstur var meðalhitinn í byggð í Möðrudal, -5,6 stig.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 13,6°C á Skjaldþingsstöðum þann 5. Hæsti hiti á mannaðri stöð mældist á sama stað og sama dag, 12,8 °C. Lægsti hiti á landinu mældist -26,0 stig á Setri þann 11. Lægsti hiti í byggð mældist -22,3 stig í Möðrudal þann 18. Lægsti hiti á mannaðri veðurstöð mældist -19,0 stig í Stafholtsey þ. 11.

Úrkoma

Úrkomusamt var um mestallt land.

Úrkoma í Reykjavík mældist 127,3 mm og er það nærri 70 prósent umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 70,5 mm eða tæp 30 prósent umfram meðallag. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 163,0 mm.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 20 í Reykjavík og er það 7 fleiri en í meðalári; á Akureyri voru slíkir dagar 13,2 fleiri en að meðallagi.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 29,3 og er það um meðallag. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 8,9 og er það 2 fleiri en í meðaljanúar.

Birkihríslur í vetrarskrúða
""
Birkihríslur við efri byggðir Kópavogs (í nágrenni Guðmundarlundar) hinn 1. janúar 2015.  Ljósmynd: Guðrún Pálsdóttir.

Snjólag

Snjór var nokkuð þrálátur á jörð á landinu í mánuðinum en var lengst af ekki mikill; einna mestur þó um miðbik Norðurlands.

Alhvítir dagar í Reykjavík voru 21. Að meðaltali 1971 til 2000 var alhvítt 15 daga í janúar. Í janúar 2012 voru alhvítu dagarnir 24. Alhvítt var 28 daga á Akureyri, það er 5 dögum meira en í meðaljanúar.

Samgöngur riðluðust nokkuð á vegum úti í hríðarveðrum í mánuðinum.

Vindhraði og loftþrýstingur

Vindáttir voru óstöðugar; suðlægar áttir voru ríkjandi dagana 3. til 10. og 18. til 27.  Stormasamt var með köflum; einna verst voru veðrin þann 6. og 7. (af suðaustri og suðri), þann 19. (af suðaustri) og þann 25. (af suðvestri).

Vindhraði var í meðallagi í mánuðinum.

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 988,5 hPa og er það -11,8 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Lægstur mældist þrýstingurinn á Gufuskálum þann 7., 939,0 hPa. Þetta er lægsti þrýstingur sem mælst hefur hér á landi síðan 1999. Hæstur þrýstingur í mánuðinum mældist 1031,8 hPa á Egilsstaðaflugvelli þann 18.

Skjöl fyrir janúar

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í janúar 2015 (textaskjal).

Þessa grein, tíðarfar í janúar 2015, er einnig hægt að sækja eða lesa sem pdf-skjal (0,4 Mb).

Daglegt yfirlit mánaðarins á fjórum ákveðnum veðurstöðvum má sækja í sérstaka töflu.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica