Fréttir
Spá fyrir vind 1. desember 2014 kl. 01.

Ítrekuð viðvörun við illviðri

Illviðri spáð síðdegis á morgun og fram á mánudag - ekkert ferðaveður

29.11.2014

Veðurstofan vekur áfram athygli á spá um illviðri síðdegis á morgun, sunnudag og fram á mánudag. Lægðin sem veldur óveðrinu er að taka á sig mynd suðvestur í hafi og þegar þetta er skrifað er hún stödd um 700 km austur af Nýfundnalandi.

Lægðin er á leið til norðausturs en á morgun fer hún hratt til norðurs og dýpkar ört. Á morgun er útlit fyrir vaxandi suðaustanátt, meðalvindhraði verður víða á bilinu 18-25 m/s eftir hádegið. Vindhviður geta náð yfir 40 m/s vestan og norðan undir fjöllum á Vesturlandi, til dæmis undir Hafnarfjalli. Suðaustanáttinni fylgir rigning og er útlit fyrir talsvert eða mikið úrkomumagn á suðurhelmingi landsins. Það er von á þíðu á láglendi en líkur eru á að úrkoman verði á formi slyddu eða snjókomu á heiðum og fjöllum, einkum í fyrstu.

Undir kvöld á morgun verður lægðin á norðurleið skammt vestan við land og sunnan við hana er mikill vindstrengur sem mun herja á landið. Um kl. 21 er útlit fyrir að veðrið nái hámarki suðvestanlands með suðvestan 20-30 m/s. Upp úr miðnætti færir þessi veðurhæð sig yfir á Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra og einnig á Norðurland Eystra. Má búast við að vindhviður geti náð yfir 50 m/s á þessum slóðum þar sem vindur stendur af fjöllum. Með suðvestanáttinni kólnar og mun úrkoman á sunnudagskvöldið færa sig yfir í að vera á formi slydduélja og síðar snjóélja.

Á mánudagsmorguninn er gert ráð fyrir suðvestan stormi (18-25 m/s), en allhvössum eða hvössum vindur síðdegis (13-20 m/s). Útlit er fyrir éljagang, en að létti til norðaustan- og austanlands. Áfram kólnar í veðri og má búast við hita um og undir frostmarki þegar kemur fram á daginn.

Af ofansögðu er ljóst að spáð er illviðri eftir hádegi á sunnudaginn og fram á mánudag og ekkert ferðaveður verður.

Þessi tilkynning er unnin með aðstoð tölvuspáa með greiningartíma kl. 12 á laugardag. Litlar breytingar eru frá spám gærdagsins, þó ber að nefna að mögulega er óveðrið u.þ.b. tveimur klukkustundum fyrr í nýjustu spám en styrkur þess svipaður.

Aðfaranótt mánudags
""
Spá fyrir vind kl. 01 aðfaranótt mánudags 1. desember. Sjá má mjög skæða vindstengi NV- og N-til á landinu. Þarna er lægðin stödd norðvestur af Vestfjörðum, nærri þeim stað þar sem lágmark er í vindstyrk (uppi í vinstra horni myndar). Veðurspá þessi er reiknuð af Veðurstofu Íslands með Harmonie veðurlíkaninu. Spáin uppfærist fjórum sinnum á sólarhring og má alltaf sjá nýjustu kortin á vefnum.

Veðurstofunni, 29. nóvember 2014 kl. 15:30.
Vakthafandi veðurfræðingar:
Teitur Arason og Óli Þór Árnason.
Veðurviðvörun á pdf formi

Viðvörun vegna vatnavár

Mikilli rigningu er spáð á Vestur-, Suðvestur-, Suður- og Suðausturlandi fram á aðfaranótt mánudags. Búast má við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla á þessum svæðum og þar gæti sólarhringsúrkoma farið vel yfir 100 mm (sjá meðfylgjandi kort, stækkanlegt). Varað er við vexti í ám á Snæfellsnesi, kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökla og við sunnanverðan Vatnajökul. Vöð yfir ár á þessum svæðum geta orðið varhugaverð.

Vatnavársérfræðingar: Matthew J. Roberts og Jón Ottó Gunnarsson.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica