Fréttir
Jarðskjálftar í mars 2014.

Jarðskjálftar í mars 2014

11.4.2014

Tæplega 1500 jarðskjálftar mældust með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í mánuðinum. Mesta virknin var við Húsmúla á Hellisheiði. Skjálftahrina varð 8. og 9. mars undir sunnanverðu Kleifarvatni og fannst stærsti skjálftinn í Hafnarfirði og Reykjavík. Í byrjun mars varð smáskjálftahrina suðvestur af Herðubreið.

Reykjanesskagi

Um 14 jarðskjálftar mældust á Reykjaneshrygg. Stærsti skjálftinn var 2,5 að stærð og átti upptök við 63,3°N. Flestir hinna skjálftanna áttu upptök við Geirfugladrang og vestur af Reykjanestánni seinni hluta mánaðarins. Á Reykjanesskaga voru um 90 jarðskjálftar og þar af voru tæplega 60 á Krýsuvíkursvæðinu. Skjálftarnir á Krýsuvíkursvæðinu voru flestir 8. - 9. mars og áttu upptök undir sunnanverðu Kleifarvatni. Stærsti skjálftinn þar var 2,7 að stærð þann 9. mars kl. 07:30 og fannst hann í Hafnarfirði og Reykjavík. Þann 26. mars mældist skjálfti af stærð 2,4 við norðanvert Kleifarvatn.

Suðurland

Á niðurdælingarsvæði Hellisheiðarvirkjunar við Húsmúla mældust um 350 smáskjálftar. Mest var skjálftavirknin þann 2. mars og einnig 23. mars en þá mældist stærsti skjálftinn á svæðinu 2,1 stig. Annars staðar á Hengilssvæðinu mældust tæplega 60 jarðskjálftar. Flestir voru í grennd við Ölkelduháls og við Háhrygg norðaustan við Hengil. Stærsti skjálftinn við Ölkelduháls var 2,2 að stærð þann 14. mars og stærsti skjálftinn við Háhrygg var 27. mars, einnig 2,2 stig. Báðir þessir skjálftar fundust í Hveragerði.

Í Ölfusinu mældust 30 smáskjálftar. Sá stærsti var 1,4 stig en allir aðrir minni en einn að stærð. Annars staðar á Suðurlandi, frá Selfossi og austur undir Heklu, mældust um 70 jarðskjálftar og voru þeir allir minni en 1,5 að stærð. Upptök þeirra voru aðallega við Hestfjall, í Holtunum og í Landsveit. Undir Heklu mældust tveir smáskjálftar 3. og 29. mars. Sá fyrri og stærri var 0,4 stig. Alls 13 smáskjálftar áttu upptök um 4 - 5 kílómetra austur og norðaustur af Heklu. Sá stærsti var 0,7 stig þann 17. mars. Tvær nýjar jarðskjálftastöðvar voru settar upp nýlega norðan og sunnan við Heklu og við það hefur næmni kerfisins á svæðinu aukist. Við Vatnafjöll mældust 13 jarðskjálftar og var stærsti skjálftinn þar 1,5 stig.

Norðurland  

Á Tjörnesbrotabeltinu mældust um 180 jarðskjálftar. Meirihlutinn var á vesturhelmingi Húsavíkur-Flateyjar misgengisins austur af Flatey og fyrir mynni Eyjafjarðar. Stærsti skjálftinn, 2,7 að stærð, varð klukkan hálfeitt aðfaranótt 21. mars, um fimm kílómetra norðaustur af Gjögurtá. Í Öxarfirði og norður af Tjörnesi mældust um 70 skjálftar. Við Þeistareyki mældust fjórir litlir skjálftar og 14 á Kröflusvæðinu, sá stærsti 1,9 að stærð klukkan 3:37 14. mars. Rúmlega tugur skjálfta mældist tæplega 10 kílómetrum sunnan við byggðina í Kelduhverfi, flestir þann 8. mars.

Mýrdalsjökull

Undir Mýrdalsjökli mældust um 120 jarðskjálftar í mars. Þar af voru rúmlega 50 staðsettir inni í Kötluöskjunni, allir innan við tvö stig. Smáhrina var í lok mánaðarins í vestanverðri öskjunni. Talsverð smáskjálftavirkni var líka í nágrenni Austmannsbungu og norðan Hábungu. Um 25 grunnir skjálftar urðu við Goðalandsjökul og ríflega 10 við Hafursárjökul. Suðaustan Goðabungu voru 15 skjálftar staðsettir í þyrpingu á 4 - 6 kílómetra dýpi. Sá stærsti var 2,5 að stærð þann 22. mars kl. 17:05. Nokkrir djúpir smáskjálftar urðu undir austan- og suðaustanverðum Mýrdalsjökli.

Um 20 jarðskjálftar áttu upptök sín undir Torfajökli en enginn þeirra náði tveimur stigum.

Hálendi

Í mars mældust tæplega 300 skjálftar í Vatnajökli og Dyngjufjöllum. Þar af var bróðurparturinn í kringum Öskju og Dyngjufjöll eða 239. Stærsti skjálftinn á svæðinu var 2,2. Smáskjálftahrina með um 120 skjálftum varð um þrjá kílómetra suðvestur af Herðubreið, aðallega dagana 3. og 4. mars.


Myndin sýnir afstæðar staðsetningar skjálfta suðvestur af Herðubreið dagana 3.-9. mars 2014.

Í Vatnajökli mældust 82 skjálftar við Bárðarbungu, 10 í Kverkfjöllum og 27 í Grímsvötnum. Alls 42 skjálftar mældust sunnan til í Skeiðarárjökli og í Öræfajökli. Langflestir þeirra voru örsmáir og dreifast að því er virðist eftir jaðri jöklanna.

 Á Langjökulssvæðinu mældust fimm smáskjálftar við Þórisjökul og sex við Sandvatn. Einn skjálfti var staðsettur við Hagafell. Stærstu skjálftarnir á svæðinu voru 1,5 stig. Auk þess urðu þrír smáskjálftar vestan Geysis, einn í Borgarfirði og einn undir Holtavörðuheiði í Hrútafirði.

Jarðskjálftar í mars 2014 (pdf 0,5 Mb)



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica