Fréttir
Staðsetning Skaftárkatla í Vatnajökli.

Skaftárhlaup er hafið

Viðvörun vegna vatnavár

19.1.2014

Rennsli Skaftár við Sveinstind hefur verið að aukast síðasta sólarhring og rafleiðni hefur einnig aukist. Þessar athuganir þýða að Skaftárhlaup er mjög líklega hafið.

Rennslið við Sveinstind er nú um 370 m³/s. Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að brennisteinslykt finnist í Skaftárhreppi. Einnig hefur borist staðfesting á að hlaupvatn hafi náð niður í byggð. Hlaupið kemur líklegast úr vestari Skaftárkatlinum, sem síðast hljóp úr í september 2012. Það fæst ekki staðfest fyrr en með sjónrænni athugun úr flugi yfir katlana.

Möguleg vá

Næstu daga munu flóðaðstæður ríkja við bakka Skaftár. Mögulegt er að Skaftá flæði yfir vegi sem liggja nærri árbökkum.

Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.

Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum, sem og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls þar sem hlaupvatn gæti brotið sér leið upp á yfirborðið.

Bakgrunnur

Upptök hlaupa í Skaftá eru undir tveimur jarðhitakötlum í Vatnajökli. Þegar hleypur úr þeim rennur vatnið fyrst um 40 km undir jöklinum og síðan 20 km eftir farvegi Skaftár áður en það kemur að fyrsta vatnshæðarmæli, sem er viðvörunarmælir við Sveinstind. Söfnunarhraði í katlana er nokkuð jafn, því er langur tími á milli flóða jafnan ávísun á stór flóð. Hlaup úr eystri katlinum eru jafnan stærri en þau sem koma úr vestari katlinum.

Úr hvorum katli hleypur að jafnaði á tveggja ára fresti. Hámarksrennsli í hlaupum úr Vestri katlinum hefur mest orðið um 900 m3/s, en venjulega á bilinu frá 200 til 700 m3/s. Vatn tekur nokkurn tíma að ná niður að þjóðvegi, en það mun flæða út á hraunið neðan Skálarheiðar. Útbreiðsla þess nær þó ekki hámarki fyrr en nokkru eftir að það tekur að draga úr rennsli við Sveinstind.

Nánari upplýsingar er að finna í eftirfarandi greinargerð Veðurstofunnar: Handbók um Skaftárhlaup. Viðbragðsáætlun (pdf 9,4 Mb).

Kortið hér undir sýnir uppruna hlaupsins, þær ár sem verða fyrir áhrifum vegna þess og staðsetningar rennslistöðva. Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið með þróuninni næstu sólarhringa.

Úr yfirliti vatnavárvaktar

Rafleiðni í Múlakvísl var há, bæði fyrstu og aðra vikuna í janúar. Gildi á milli ~327 og ~360 µS/cm mældust í seinni  vikunni, ásamt smávægilegri rennslisaukningu. Rafleiðni við brúnna á Múlakvísl hafði mælst samfellt yfir 220 µS/cm síðan 31. desember 2013 en dæmigerð gildi fyrir þennan tíma árs eru ~180 µS/cm.

Sýrustig var 7,76 mælt af brúnni 8. janúar og rafleiðni 442 µS/cm mæld norðan við Selfjall 9. janúar. Í þriðju vikunni var rafleiðnin enn há, um 290 µS/cm. Há rafleiðni benti til þess að hlaupvatn læki undan einum katlanna á vatnasviði Kötlujökuls. Hinsvegar sáust engar breytingar í hæð þekktra katla í flugi þann 8. janúar.

Vatnavársérfræðingar:
Svava Björk Þorláksdóttir
Óðinn Þórarinsson
Matthew J. Roberts



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica