Fréttir
Líkleg flóðasvæði næsta sólarhring.

Flóðaviðvörun fyrir Hvítá og Ölfusá

Viðvörun vegna vatnavár - uppfærsla

26.2.2013

Ástæða flóðanna um allt land eru miklar rigningar og hlýindi undanfarna daga enda bráðnar snjór hratt við slíkar aðstæður.

Síðasta sólahringinn mældist úrkoma yfir 50 mm á vatnasviði Hvítár og Ölfusár. Úrkoman viðheldur miklu rennsli í öllum ám á Suðurlandi. Mikið vatn er í Stóru Laxá, Brúará og Tungufljóti og rennsli á efra vatnasviði Hvítár (við Fremstaver) er enn mjög mikið.

Klukkan eitt í dag, 26. febrúar, var rennsli Hvítár við Fremstaver yfir 520 rúmmetrar á sekúndu en það fór hæst í rúmlega 600 rúmmetra á sekúndu í gær. Það tekur vatnið um sólarhring að renna frá Fremstaveri í Ölfusá við Selfoss. Því  má gera ráð fyrir að hámarksrennsli í Ölfusá verði ekki náð fyrr en seinna í dag eða kvöld og þá viðbúið að það haldist hátt vel fram á morgundaginn.

Rennsli Ölfusár við Selfoss er núna 1.170 rúmmetrar á sekúndu og líklegt að rennsli hennar muni ná 1.300 rúmmetrum á sekúndu í hámarki flóðsins. Síðasta flóð í Hvítá–Ölfusá sem náði svipuðu rennsli var í desember 2007 þegar mældust 1.300 rúmmetrar á sekúndu við Selfoss.

Spáð er rigningu fram á kvöld en kaldara og þurrara veðri er líður á vikuna þannig að búast má við að vatnavextir minnki á næstu dögum.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica