Fréttir
snjór þekur visnuð strá og greinar, sól við sjóndeildarhring
Vetrarstemmning við Helluvatn í Heiðmörk.

Tíðarfar ársins 2012

Bráðabirgðayfirlit 28. desember

30.12.2012

Tíð var lengst af hagstæð. Árið byrjaði þó með miklum umhleypingum og illiviðrum sem milduðust þegar á leið. Um mánaðamótin mars/apríl skipti mjög um veðurlag og við tóku norðlægar áttir sem voru lengst af ríkjandi það sem eftir lifði árins. Vor og sumar voru óvenju sólrík bæði nyrðra og syðra. Þurrkar háðu jarðargróðri víða um norðan- og norðvestanvert landið langt fram eftir sumri. Óvenjulegt hríðarveður gerði á Norðurlandi snemma í september og olli miklum fjársköðum og rafmagnsleysi auk samgöngutruflana. Óvenjuillviðrasamt var framan af nóvember, þá voru mikil snjóþyngsli um landið norðaustanvert og víða urðu fokskaðar.

Hiti

Árið var mjög hlýtt, sérstaklega um landið vestanvert og var það sjöunda hlýjasta frá upphafi mælinga í Stykkishólmi, 11. sæti í Bolungarvík , því 13. í Stykkishólmi og 14. í Vestmannaeyjum. [Svo litlu munar á einstökum sætum að síðustu dagar ársins geta hnikað þeim lítillega til].

Í Reykjavík er árið það 17. í óslitinni röð ára þar sem árshitinn er yfir meðallagi og það 14. á Akureyri.

Úrkoma

Úrkoma í Reykjavík var um 12% yfir meðallagi, mjög votviðrasamt var fyrstu þrjá mánuði ársins og sömuleiðis í september en með þurrviðrasamasta móti í maí, júní og júlí. Úrkoma á Akureyri var um 15% yfir meðallagi en sérlega úrkomusamt var þar í september og nóvember.

Sólskin

Árið var sérlega sólríkt bæði suðvestanlands og á Norðurlandi. Sólskinsstundir mældust um 1585 í Reykjavík á árinu og hafa aðeins einu sinni mælst fleiri. Það var árið 1924. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 1415 og hafa aldrei mælst fleiri á einu ári. Þetta er reyndar nærri 140 stundum meira en mest hefur mælst á einu ári áður á Akureyri. Þó eignaðist árið ekkert mánaðarmet sólskinsstunda.

Loftþrýstingur

Loftþrýstingur var um 1,8 hPa yfir meðallagi í Reykjavík.


Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica