Fréttir
Úr vinnuferð við Gígjukvísl árið 2010.
1 2

Hlaupvatn í Gígjukvísl

Lítið hlaup úr Grímsvötnum

22.11.2012

Staðfest hefur verið með leiðnimælingu við brúna á Gígjukvísl að hlaupvatn er í ánni.

Vatnshæð hefur vaxið lítillega undanfarna daga en rennslið er samt sem áður minna en á hlýjum sumardegi.

Jarðskjálftamælir á Grímsfjalli sýnir ekki mikinn óróa en óróinn bendir þó til þess að vatn geti verið að brjóta sér leið undan jöklinum.

Ekki er gert ráð fyrir að hlaupið verið stórt, enda stutt síðan hljóp úr Grímsvötnum og lítið vatn í vötnunum.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica