Fréttir
Ský gægist yfir hraunbrún
Bólstraský í Mývatnssveit 12. júlí 2010.

Veðurspáleikur

Veðurstofa Íslands 90 ára

6.12.2010

Í tilefni af 90 ára afmæli Veðurstofu Íslands hefur verið hannaður leikur þar sem almenningi gefst kostur á að spá veðrinu tvo daga fram í tímann. Reglurnar eru einfaldar. Þátttakendur skrá sig til leiks og byrja að spá á mánudegi. Spáð er hvernig veðrið verður kl. 12 á hádegi á miðvikudegi og senda þarf spána inn fyrir kl. 18 á mánudaginn. Á þriðjudegi er spáð fyrir fimmtudegi o.s.frv. Ekki er spáð á laugardegi og sunnudegi þar sem ekki er ætlast til að þátttakendur sitji vaktina eins og veðurfræðingar Veðurstofunnar. Spárnar eru svo bornar saman við veðurathuganir. Síðdegis á miðvikudag eru birtar fyrstu niðurstöður og á sunnudegi eru úrslit leiksins ljós.

Tilraunaútgáfa er sett á vefinn í dag, mánudaginn 6. desember, og spiluð í eina viku. Ef ekki koma upp neinir alvarlegir gallar á leiknum verður alvörukeppni vikuna 13.-17. desember. Sigurvegari fær verðlaun og viðurkenningu frá Veðurstofunni en meginmarkmiðið er að allir hafi gaman - og líka gagn - af leiknum.

Spáð er fyrir sex staði, tvo staði á dag, og er Reykjavík alltaf annar staðurinn en hinir staðirnir eru Stykkishólmur, Bolungarvík, Akureyri, Egilsstaðir og Kirkjubæjarklaustur.

Stig eru gefin fyrir svör og verða stig sem gefin eru á mánudegi aðgengileg hverjum þátttakanda eftir hádegi á miðvikudegi og stigatafla öllum þátttakendum. Þrír þátttakendur verða frá Veðurstofunni, þau Spágerður, Samur og Fyrrimundur. Spágerður spáir að veðrið verði nákvæmlega eins og sjálfvirku staðaspárnar gera ráð fyrir. Samur er frekar íhaldssamur og spáir að veðrið verði óbreytt næstu tvo daga, þ.e. hann spáir að veðrið verði eins og það var kl. 12 þann dag sem spáð er. Fyrrimundur reiknar með að sagan endurtaki sig og að veðrið verði eins og það var þennan dag fyrir nákvæmlega einu ári.

Spágerður, Samur og Fyrrimundur geta að sjálfsögðu ekki unnið til verðlauna í leiknum, ekki frekar en starfsmenn Veðurstofunnar.

Ef þessum afmælisleik Veðurstofunnar er vel tekið er gert ráð fyrir að hann verði endurtekinn reglulega. Það er þátttakenda að að gefa tóninn.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica