Fréttir
Úr flugvél sést dreifður lagnaðarís
Hafís á Grænlandssundi 25. júlí 2006. Ískönnunarflug Landhelgisgæslunnar.

Hafísyfirlit í hverjum mánuði

Margvíslegar upplýsingar um hafís

21.9.2009

Á Veðurstofunni eru skráð mánaðaryfirlit um hafís, rétt eins og um veður og jarðskjálfta. Sú nýbreytni er á döfinni að birta hafísyfirlitin sem fréttir jafnóðum.

Um hafís

Hafís á Íslandsmiðum er algengur, einkum á hafsvæðinu norðvestur af landinu, en ísmagnið í Grænlandssundi ræður mestu þar um. Hafískoma við Ísland, við landið sjálft, er miklu fátíðari og fer eftir ýmsum þáttum, ekki aðeins ísmagni í Grænlandssundi heldur einnig ástandi sjávar í Íslandshafi og almennri lofthringrás yfir norðurhveli.

Norska veðurstofan birtir daglega hafískort af svæðinu austur af Grænlandi og danska veðurstofan birtir vikulega kort sem sýna útbreiðslu hafíss allt í kringum Grænland. Bandarísk veðurtungl sýna hafís á Grænlandssundi sem rauðbrúnleita flekki á myndum sem uppfærast oft á dag en út frá slíkum upplýsingum er metinn hafísþéttleiki svæðisins einu sinni á sólarhring.

Tilkynningar um hafís á Íslandsmiðum berast til Veðurstofunnar frá Landhelgisgæslunni; úr ískönnunarflugi annars vegar og með tilkynningum frá sjófarendum hins vegar. Í einstaka tilfellum koma tilkynningar frá sjónarvottum á landi. Veðurstofan birtir á vefnum þær tilkynningar sem berast, ásamt ofangreindum upplýsingum um stöðu hafíss byggða á gervihnattamyndum. Fylgst er grannt með hafísnum og þegar ástæða er til eru viðvaranir birtar.

Mánaðaryfirlit um hafís eru skráð, eins og fyrr segir, og hér fylgir hið fyrsta:

Hafís í ágúst 2009

Talsvert var um borgarísjaka norður og norðvestur af Vestfjörðum í mánuðinum. Samtals bárust níu tilkynningar þess efnis á tímabilinu 6. til 22. ágúst, átta frá skipum og ein frá landi. Borgarísjakarnir voru næst landi skammt frá Hornströndum, eða á 66°28,81'N og 21°23,86'V og nálægt Selskeri (66°07,5'N og 21°31'V). Enginn hafís var á Grænlandssundi í ágúst og þar var norðaustanátt ríkjandi.

Eldri mánaðaryfirlit ársins, svo og fyrri ára, má einnig skoða hér á vefnum.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica