Fréttir
Iframe: veðurspá á Vestfjörðum
Vefurinn bb.is á Ísafirði er einn af mörgum sem nýtir sér iframe-þjónustu Veðurstofunnar.

Vefur Veðurstofunnar í úrslit

26.1.2009

SVEF, Samtök vefiðnaðarins, hafa birt lista yfir þau vefsetur sem dómnefnd vefverðlaunanna 2008 hefur valið til úrslita í keppninni um besta vefinn árið 2008.

Flokkarnir eru sex talsins og fimm vefir hafa verið valdir í úrslit í hverjum flokki. Vefur Veðurstofunnar er í flokknum Vefir í almannaþjónustu.

Ein af meginviðbótum við vefinn á síðasta ári var iframe-þjónusta (ramma-þjónusta) sem Veðurstofan býður upp á. Þjónustan gerir vefstjórum kleift að birta veðurupplýsingar án fyrirhafnar á vefjum sínum. Þessi þjónusta er ókeypis.

Vefverðlaunin 2008 verða veitt í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þann 30. janúar næstkomandi.

Vefur Veðurstofunnar var valinn besti vefurinn í flokknum Vefir í almannaþjónustu árið 2007.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica