Fréttir
Rennsli í Skaftá 19. - 23. júní 2016.

Minni háttar Skaftárhlaup er líklega hafið

Viðvörun vegna vatnavár

23.6.2016

Rennsli Skaftár við Sveinstind hefur verið að aukast síðustu daga og minni háttar aukning hefur einnig orðið í rafleiðni. Sumarleysing á jökli eða rigningar orsaka ekki hið aukna rennsli. Þessar athuganir þýða að Skaftárhlaup er líklega hafið.

Staðan

Rennslið við Sveinstind undir hádegi var um 112 rúmmetrar á sekúndu. Hlaupið kemur líklegast úr Vestari Skaftárkatli, sem síðast hljóp úr í júní 2015. Vegna hins stutta tíma sem liðið hefur milli hlaupa er ekki talið að hætta sé á ferðum. Upptök hlaupsins fást ekki staðfest nema með athugunum úr flugi yfir katlana. Hlaupið getur staðið yfir næstu daga, en hámarksrennsli við Sveinstind verður líklegast náð í dag eða á morgun.

Aftur skal bent á að hér er um minniháttar jökulhlaup að ræða og mjög ólíklegt er að það valdi tjóni í Skaftárdal.

Möguleg vá

  • Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.
  • Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum.

Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið með þróuninni.

Náttúruvársérfræðingar

Bryndís Ýr Gísladóttir
Matthew J. Roberts
Martin Hensch
Þorsteinn Þorsteinsson
Gunnar Sigurðsson
Tómas Jóhannesson



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica